Fimm lykilatriði þyngdarstjórnunarÆvar Þórólfsson

Í flestu sem við tökum okkur fyrir hendur eru bara nokkur grundvallaratriði sem skilja mili feigs og ófeigs. Við þyngdarstjórnun eru þessi atriði fimm talsins, að mínu mati.

1. Agi
Það er nauðsynlegt að beita sjálfan sig aga, annars mun ekkert ganga. Bara einn diskur. Bara einn nammidagur. Alltaf að pæla í mataræðinu. O.s.frv. Það skal þó hafa í huga að best er að byrja á litlu atriðunum og færa sig smám saman yfir í þau stærri. Allsherjarbylting er oftast dæmd til að mistakast. Einnig er gott að hafa í huga að agi er ekki leiðinlegur nema maður líti svo á hann. Ég lít aga hins vegar öðrum augum. Agi er ekki afþreying sem hægt er að flokka sem leiðinlega eða skemmtilega. Agi er meira í ætt við súrefni.

2. Prótein
Flestir fá allt of lítið prótein. Við þurfum prótein í allar máltíðir. Prótein heldur okkur söddum lengur. Það orsakar ekki blóðsykurfall, eins og kolvetni gerir, en blóðsykurfall er orsakavaldur nartþarfarinnar. Svo stækkar prótein vöðva og eykur þannig grunnbrennslu líkamans. Sem sagt, nóg af próteini og hlutirnir fara að ganga.

3. Vatn
Áhrif vatns við þyngdarstjórnun eru mögnuð og margvísleg. Aukið vatn þýðir meiri vatnslosun, þá fer bjúgur. Vatn bætir meltingu og úrvinnslu næringarefna. Vatn bætir virkni flestra líffæra, til dæmis hæfni lifrar til að vinna orku úr fitu í stað þess að geyma hana. Drekkum því nóg af vatni. Lágmark 8 glös/2 lítra á dag.

4. Hreyfing
Segir sig sjálft. Næring hefur reyndar meiri áhrif, eða um 60% á móti 30% áhrifa hreyfingar (svefn telur svo síðustu 10%). En hreyfing hefur svo mikil langtímaáhrif. Með stækkun vöðva eykst grunnbrennsla og líkaminn á þá auðveldara með að takast á við aukna inntöku. Hreyfing er okkur líka nauðsynleg til að móta líkamann og gera hann stinnari, en á því sviði hefur næring takmörkuð áhrif. Svo hefur hreyfing líka svo góð áhrif á hjartað og flesta aðra líkamsstarfsemi.

5. Þrautseigja
Án þrautseigju er fólk dæmt til jójó-kúra. Í raun á ekki að vera til neitt sem kallast megrunarkúr. Það eina sem dugir er breyttur lífsstíll, sem er þó hægt að stunda með mismunandi áherslu eftir þörfum. Eingöngu með breyttum lífsstíl er hægt að ná fram langtímaáhrifum. Breyttur lífsstíll krefst þrautseigju. Taka ákvörðun og hætta aldrei. Þó maður misstígi sig, þá hættir maður ekki. Maður heldur bara áfram þar sem frá var horfið.

Ef þessar grunnreglur verða hluti af þínu lífsviðhorf þá nærð þú árangri. Punktur.

Skrifa athugasemd

Auglýsing