Vor í loftiÆvar Þórólfsson
Nú er svo sannarlega vor í lofti. Gróðurinn er allur að taka við sér, sólin hefur aðeins skinið á okkur og fyrsta hitabylgjan hefur þegar skollið á norðausturhluta landsins. Reyndar smá snjóföl í hálendi Kópavogs og Garðabæjar í morgun, en hún bráðnar fljótt.Sumrin eru okkur bráðnauðsynleg. Þá fáum við tækifæri til að hlaða batteríin í sumarfríum og koma þannig endurnærð inn í haustið. Þó er synd að þegar við höfum endurnært andlegu hliðina yfir sumarið þá er allt of algengt að líkaminn er ekki í jafn góðu ástandi. Okkur hættir nefnilega til að vera helst til “of góð” við okkur á sumrin. Aðeins of mikill bjór. Sama má segja um vínin rauðu og hvítu. Þá er ekki lengur hætta á kalsárum við að fá sér ís. Grillsteikurnar með rjómasósu og bakaðri kartöflu með smjöri eru líka oftar á matseðlinum. Og svo framvegis.
Þetta er reyndar skiljanlegt, svona eftir vetrardrungann. En það er hægt að gera þetta á annan hátt og koma þannig með líkamann jafn vel undan sumri og andann. Þannig nær maður líka að nýta batteríin betur yfir veturinn. Meiri kraftur, betri ending. Það er nefnilega ekki nauðsynlegt að máltíðir innihaldi hitaeiningar í þúsundatali svo þær sé ljúffengar. Það er hægt, og er meira að segja frekar auðvelt, að gera vel við sig í mat og drykk á hagkvæman, og í raun frábæran, hátt fyrir líkamann.
Á sumrin er alltaf talað um íslenska grænmetið, enda er það aldrei betra en á þessum tíma. Svo sem lítil ný sannindi hér. Prófaðu núna að geyma sem mest af þessu upp á borði frekar en inni í ísskáp. Ég er viss um að það skemmist jafnvel síður, því það mun alltaf klárast svo fljótt. Maður fær sér nefnilega mun frekar ávexti og grænmeti ef það situr á borðinu fyrir framan mann!!
Stórsteikur með rjómasósu eru ekki nauðsynlegar þegar á að grilla. Hvernig væri að nota sumarið til æfinga á fiskgrillun? Til dæmis lax með engiferi eða lúðu í álbögglum með sítrónu, rauðlauk og ólífum. Þessar máltíðir eru mun hollari og léttari í maga en stórsteikurnar. Líka ódýrari. Hafa sem mest af grænmeti í meðlæti. Hafa svo heimagerða kalda sósu, t.d. sýrður rjómi (5%) með hvítlauk, smá sinnepi, sítrónu og steinselju. Miklu betra og hollara en bragðlausa majonessullið sem fæst útí búð.
Eftirrétturinn þarf heldur ekki að gera út af við mann. Jarðaber og bláber með sýrðum rjóma sem hefur verið hrærður upp með fræum úr vanillustöng eða vanillusykri. Gerir ísinn og rjómann alveg óþarfan. Svona oftast alla vega.
Auðvitað má stundum leyfa sér óhollustuna. Óhollustan má bara ekki verða að meginreglu. Nammidagur einu sinni í viku. Kannski tvisvar í sumarfríinu. Nammidagur sjö daga vikunnar er hins vegar afleit hugmynd. Bæði líkami og veski þjást fyrir slíkan lifnað.
Þá er gott að huga að smáatriðunum. Success is in the details, hefur oft verið sagt. Fá sér bara einu sinni á diskinn. Ekki nota mikla hamborgarasósu, prófa kannski salsasósu í staðinn. Setja hvítlaukssósuna (þessa með sýrða rjómanum) í bökuðu kartöfluna frekar en að drekkja henni í smjöri (sem vel á minnst er með yfir 80% fituinnihald). Fara varlega í reykta matinn, svo sem svínakjötið og pylsurnar. Prófa svo Lite/Light bjór í stað þess venjulega. Þá má benda á þá gullnu reglu að fá sér tvö vatnsglös fyrir hverja máltíð!
Að endingu má minna á að þegar farið er í ferðalag, hvort sem það er innlands eða utan, þá er ekkert lögmál sem segir að á hverju kvöldi skuli vera stórmáltíð. Eða stórmáltíð þrisvar sinnum á dag ef út í það er farið. Okkur finnst það kannski gott, en við höfum bara ekki gott af því! Það á ekki að þurfa samviskubit og stíft prógramm fram að jólum til að bæta upp fyrir þriggja vikna sukkveislu um sumarið.
Sjálfur hef ég prófað léttu leiðina. Ég tók bara minn næringarsheik með í ferðalagið. Hafði fyrir vikið meiri tíma með börnunum og í skoðunarferðir (fljótlegar máltíðir). Var svo um 8 kílóum léttari í ágúst miðað við maí og kom uppfullur af orku inn í veturinn. Þetta mun ég hiklaust gera aftur þetta sumar.
Verum skynsöm í sumar.
Treat your body like a temple, it’s the only place you have to live!!